Er ég hvítur!
27.3.2007 | 12:59
Sumt er svart og annað hvítt.
Núna eigum við að velja grátt eða hvítt eða hætta öllu eða stoppa og sjá til.
Það er staðreynd að Kárahnúkavirkjun er óafturkræf framkvæmd. Aftur á móti eru eldgos eru líka óafturkræf og menga mun meira en nokkur álframleiðsla og ekki fara þau í umhverfismat. Svo er allur þessi brennisteinn sem kemur úr opnum hverum hér á landi.
Núna koma upplýsingar um að Langjökull verði horfinn innan 150 ára með sömu bráðnun og er í gangi og allir jöklar svo til horfnir eftir 200 ár.
Þannig að við verðum að velja grátt eða hvítt, stoppa eða að skoða málin. Annað hvort virkjum við þetta allt saman eða verndum náttúruna.
Ég er með hugmynd! Verjum jöklana. Notum eitthvað af þessari orku til að kæla niður landið svo að jöklarnir haldi sér. íslendingar gætu verðið fremstir í heiminum í djúpborun og náum í vistvæna orku sem við notum tl að kæla niður landið með þeirri orku og verðum eina landið í heiminum sem á eftir jökla. Væri svo ekki líka hægt að setja vothreinsibúnað á alla þessa eftirlitslausu hveri. ???
Myndina tók Bjarki Björgólfsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Landið og lífið.
26.3.2007 | 00:21
Hér er enn ein myndin af netinu. Myndin er tekin af síðu ESA: "European Space Agency".
Myndin sem er tekin 21 júní 2004, sýnir vel þörungablóma við suð-vesturland og útaf suðurlandi.
Ljósbláu og grænu flekkirnir eru þörungablómi. Einsog segir réttilega í greininni er lífmassinn í þörungablómanum meiri en allur annar lífmassi við Ísland.
Takið eftir grænu hringamyndunum við suðurlandið.
Sjá link.:.http://earth.esa.int/cgi-bin/satimgsql.pl?show_url=274&startframe=0
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Hvernig við getum bætt ástandið!
22.3.2007 | 18:49
Buffaló

"Sjáðu nú til Norm, þetta virkar svona....
Buffalahjörð getur aðeins farið jafn hratt og hægasti buffalinn í hjörðinni. Og þegar veitt er úr hjörðinni eru það hinir hægustu og veikustu aftast í hjörðinni sem eru drepnir fyrst. Þetta náttúrulega val er mjög gott fyrir hjörðina í heild sinni því að með reglulegum drápum á veikustu og hægustu einstaklingunum batnar heilsufar hjarðarinnar og hraði hennar. Á sama hátt má segja að mannsheilinn geti aðeins unnið eins hratt og hægustu heilasellurnar leyfa. Eins og við öll vitum þá drepur alkohól heilasellur en eðlilega drepur það hægustu og veikustu sellurnar fyrst. Á þennan hátt veldur regluleg inntaka áfengis því að veikari sellurnar drepast og þar með því að heilinn verður hraðvirkari og skilvirkari.
Þetta er ástæðan fyrir því að maður verður svona klár eftir nokkra bjóra!"
Breiðamerkurjökull '73 vs '00 og umhverfisáhrif.
22.3.2007 | 10:41
Ég datt niður á þessa mynd á netinu.
Dálítið stór mynd en vel þess virði að skoða. Myndin vinstra megin er tekin í september 1973 og sú síðar í desember 2000. Þarna sést vel hvað jökullin hefur dregist saman og líka sem kom mér á óvart að ströndin er að styrkjast. Þannig að áhyggjur manna um að hringvegurinn sé að rofna gæti verið ástæðulaus.
Það sem kom mér þó mest á óvart er textinn sem fylgir þessum myndum. Það skal tekið fram að þetta er af síðu Sameinuðu Þjóðanna, UNEP. Sem stendur fyrir umhverfisstefnu Sameinuðuþjóðanna.
linkur: http://na.unep.net/digital_atlas2/webatlas.php?id=118
En þar segir: "Over time, the glacier has receded so that its base is now several kilometers from the coast. As the huge river of ice pulled back across the Icelandic landscape, thousands of hectares of fertile farmland have been exposed, and people are populating the area that was until recently buried under tonnes of ice. ".
Í lauslegri þýðingu útleggst: "Í gegnum tíman hefur jökullinn minnkað þannig að jaðarinn er nokkrum kílómetrum frá ströndinni. Við að miklir skriðjöklar hopa á Íslandi, koma þúsundir ferkílómetra af frjósömu ræktarlandi í ljós og fólk er að setjast að á þessum svæðum sem áður voru hulin þúsundum tonna af ís. "
já já. Mikið af fólki sem býr við jökuljaðarinn við ræktunarstörf. Eru allar upplýsingar svona sem við erum að fá af umhverfisáhrifum. Þurfa fréttir alltaf að vera ýktar til að vera frétt.
Auðvitað er umhverfi okkar að breytast. það hefur alltaf verið að breytast. Þegar eitthvað breytist ekki þá er það dautt.
Umræðan núna um umhverfisárif er lík og heimsendaspárnar sem maður las um í menntaskóla. Fæðuskortur vegna offjölgunar mannkyns, olían búin því lindirnar væru tómar og eitthvað hræðilegt í viðbót. Púff ekkert gerðist.
Auðvitað eigum við að vera varkár og láta náttúruna njóta vafans. Ég hef td. alla tíð verið ósammála Kárahnúkavirkjun og þeim umhverfisáhrifum sem hún veldur. En virði skoðanir annarra í því máli. Einsog einn góður vinur minn sagði og gerði mig kjaftstopp, en hann sagði "eigum við að setja eldgos í umhverfismat".
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gott Partý!
21.3.2007 | 17:41

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1000
21.3.2007 | 17:15
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Maðurinn sem vildi gerast mikill rithöfundur.
21.3.2007 | 13:56
Þegar hann var spurður um hvað hann átti við með að verða mikill þá sagði hann. Ég vill skrifa texta sem allur heimurinn les. Texta sem fær fólk til að bregðast við af tilfinningu. Orð sem fær fólk til að öskra, gráta og brjótast um á sál og líkama.
Nú og hvað varð um þennan mann. ?
Hann vinnur hjá Microsoft og skrifar villumeldingar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvalveiðar sem sportveiðar
21.3.2007 | 12:25
Það er ekkert óeðlilegt að fólk viti ekki í hvorn fótinn það eigi að stíga þegar spurt sé um hvalveiðar. Eigum við að láta erlend náttúruverndarsamtök segja okkur fyrir verkum nú eða hlusta á Bandaríkjamenn. Í mínum huga er það ekki hægt. Aftur á móti verðum við að koma okkar sjónarmiðum á framfæri erlendis, þó að það áróðursstríð kosti mikla peninga.
Það sem mér finnst ámælisvert er úthlutunin á veiðinni og hvað ákvörðunin fór leynt. Það hefði vel verið hægt að auglýsa eftir umsækjendum að kvótum á hval og meta síðan umsækjendur. Ef menn fara að græða á þessum veiðum verður sama vitleysan í gangi. Allir vilja fá kvóta og bera fyrir sig frasanum um sameign þjóðarinnar.
Ég sé fyrir mér mögulegar veiðar á hval með forríkum sportveiðimönnum. Fyrirkomulagið væri það sama og fílaveiðar í Afríku þar sem þeim er stjórnað.
Ég er sannfærður um að hægt sé að rukka vel fyrir veiðar á stærstu skepnum jarðar og væri hægt að búa til mikla ferðaþjónustu um veiðarnar. Hvað vildu menn borga fyrir að eiga mynd af sér með 7 til 130 tonna hval. Vandinn er að finna nógu stóran krana til að hengja fiskinn upp.
Það að selja kjötið væri síðan sama vandamál og útgerðir standa frammi fyrir í dag.
![]() |
Álíka margir ánægðir og óánægðir með að hvalveiðar skuli hafnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nettóskuldir Reykjavíkurborgar 2005 10x meiri en ríkissjóðs.
20.3.2007 | 16:59

![]() |
Reykjavíkurborg stefnir að því að greiða niður langtímaskuldir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Kosningar
17.3.2007 | 03:16
Núna er Alþingi að ljúka störfum og kosningar framundan. Við Íslendingar höfum búið við framfaraskeið í 12 ár með sömu ríkisstjórn og miklum breytingum. Breytingarnar hafa meðal annars falist í sölu ríkisfyrirtækja, auknum alþjóðlegum áhrifum og minnkandi áhrifum pólitíkusa og margt miklu fleira.
Núna auglýsa bankar eftir lántakendum, áður áttu menn bankastjóra og hnésterkustu mennirnir eða vinabestu fengu stærstu lánin og græddu mest því verðbólgan borgaði þau.
Fyrr þurfti að fá leyfi til fjárfestinga hjá viðskiptaskrifstofu hjá einum manni í viðskiptaráðuneytinu fyrir gjaldeyri, annar gjaldeyrir var skammtaður eða með skemmtanaskatti eða hvað hann nú hét 15% aukalega. En í dag lesum við af fjárfestingum Íslendinga í erlendum blöðum.
Hvað hefur gerst.
Í dag er það einstaklingurinn sem tekur ákvarðanir fyrir sjálfan sig en ekki 63 sérvaldir snillingar sem veljast eftir loforðum á minn og þinn kostnað og þurfa ekkert sérstaklega að standa við þau. Hagvöxturinn hefur aukist og kemur t.d. frá einstaklingum sem fjárfestu í bjórverksmiðju í útlöndum, keyptu banka og fjárfestu svo í hinu og þessu hér á landi og annarsstaðar og borga í skatt núna á hverju ári nærri meir en bankinn var seldur á.
Ef þú ert með bríllíant hugmynd þá getur þú talað við einhvern snilling sem er í þessum bönkum og hann reddar þér pí grilljónum ef hugmyndin virkar. þú þarft ekki að tala við Steingrím J., Ögmund, Ingibjörgu, Adda K eða einhvern afdankaðan ríkisstarfsmann til að fá gjaldeyrisleyfi. þú talar bara við bankann þinn. Svo græðir þú og bankinn á öllu saman og borgar svo skatt hér á landi.
Aftur á móti geturðu breytt þessu kerfi aftur ef þú vilt ágæti kjósandi. Ef þú vilt breyta til og hætta áherslum á svona fyrirbæri einsog hagvöxt, gróða og útrás þá hefurðu valið. þú getur td. kosið vinstrimennina. þeir vilja skoða stöðuna og hugsa fyrir þig (S) eða þeir sem vilja hætta og segja stopp (VG) og þurfa ekkert að segja meir. Svo er þriðji flokkurinn sem segir bara kvótinn, kvótinn. Við finnum leið. (F).
Staðreyndin er að við búum við velmegun, lúxus sem er einsdæmi meðal ríkja á þessari jarðkringlu og höldum að þetta allt saman sé sjálfgefið, en það er það alls ekki. Ef við t.d. hækkum fjármagnstekjuskattinn um helming fara fyrirtækin úr landi og í land sem eru með lægri skatt á fjármagnstekjur. Engin gróðafyrirtæki eftir, allir farnir einsog blaðra sem springur í afmæli og gestirnir fara.
![]() |
Enn stefnt að því að ljúka þingi á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)