Hvalveiðar sem sportveiðar

imagesÞað er ekkert óeðlilegt að fólk viti ekki í hvorn fótinn það eigi að stíga þegar spurt sé um hvalveiðar. Eigum við að láta erlend náttúruverndarsamtök segja okkur fyrir verkum nú eða hlusta á Bandaríkjamenn. Í mínum huga er það ekki hægt. Aftur á móti verðum við að koma okkar sjónarmiðum á framfæri erlendis, þó að það áróðursstríð kosti mikla peninga.
Það sem mér finnst ámælisvert er úthlutunin á veiðinni og hvað ákvörðunin fór leynt.  Það hefði vel verið hægt að auglýsa eftir umsækjendum að kvótum á hval og meta síðan umsækjendur. Ef menn fara að græða á þessum veiðum verður sama vitleysan í gangi. Allir vilja fá kvóta og bera fyrir sig frasanum um sameign þjóðarinnar.

Ég sé fyrir mér mögulegar veiðar á hval með forríkum sportveiðimönnum. Fyrirkomulagið væri það sama og fílaveiðar í Afríku þar sem þeim er stjórnað.

Ég er sannfærður um að hægt sé að rukka vel fyrir veiðar á stærstu skepnum jarðar og væri hægt að búa til mikla ferðaþjónustu um veiðarnar. Hvað vildu menn borga fyrir að eiga mynd af sér með 7  til 130 tonna hval. Vandinn er að finna nógu stóran krana til að hengja fiskinn upp.

Það að selja kjötið væri síðan sama vandamál og útgerðir standa frammi fyrir í dag.


mbl.is Álíka margir ánægðir og óánægðir með að hvalveiðar skuli hafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Þórðarson

  Góður þessi. Ég sagði þetta einu sinni við hvalverndunarsinna, honum fannst það ekkert fyndið.

En markaðssetningin þyrfti að vera velútpæld.

Ólafur Þórðarson, 21.3.2007 kl. 14:14

2 Smámynd: Svanur Guðmundsson

Markaðssetningin er ekki vandamál. Verðið er vandamál.

Það er td. vel hægt að setja kjötið í dósir nú eða þurrka og selja til hundeigenda.

Svanur Guðmundsson, 21.3.2007 kl. 14:22

3 Smámynd: Svanur Guðmundsson

En ef þú ert að tala um markaðssetninguna á veiðileyfunum þá er hún ekkert mál.

Það er bátur til sölu á Florida (Víking eitthvað). Setjum á hann stóran fána sem á stendur.

"Kill Willy. Who needs a whale for a friend".

Svanur Guðmundsson, 21.3.2007 kl. 14:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband